Vafningarnir eru geggjaðir!!!! Gera akkúrat það sem ég leitaði eftir. Júlían var ótrúlega vinalegur og hjálpfús þegar ég kom að sækja. Hlakka til að skipta meira við Ellen og Júlían í framtíðinni.
Úlnliðsvafningar - FORGE - Stiff
Úlnliðsvafningar - FORGE - Stiff
SBD úlnliðsvafningarnir eru vara sem krafta- og styrktaríþróttafólk um allan heim reiðir sig á á æfingum og í keppnum.
Úlnliðsvafningarnir eru framleiddir í tveimur týpum og þrennum mismunandi lengdum, svo að allir ættu að finna úlnliðsvafninga sem henta.
FLEX – „mýkri týpan“ – er hönnuð til þess að gera þér kleift að beygja úlnliðinn lítillega en um leið fá góðan stuðning við úlnliðina.
STIFF – „þessir stífu“ – eru hannaðir til þess að virka eins og gifsi á úlnliðnum og koma í veg fyrir að þú getir sveigt úlnliðinn undir miklum þyngdum.
FORGE línan kemur út í takmörkuðu upplagi, en er með sömu eiginleika og er framleidd samkvæmt sömu ströngu gæðastöðlum og hefðbundna vörulínan okkar.
· SBD úlnliðsvafningarnir eru seldir í pörum
· Samþykktir af IPF þar sem þeir ná hámarks leyfðri breidd (8cm) og lengd (1m).
· Teygjan í efninu er sérstaklega hönnuð til að halda vel um úlnliði.
· Franskur rennilás
· Hægri- og vinstri úlnliðsvafningur, til að tryggja að þú getir vafið jafnt um báða úlnliði.
· Framleiddir í Sheffield, Bretlandi.