Skip to product information
1 of 8

SBD á Íslandi

Úlnliðsvafningar (2024)

Úlnliðsvafningar (2024)

Venjulegt verð 7.250 ISK
Venjulegt verð Útsöluverð 7.250 ISK
Útsala Uppselt
Taxes included. sendikostn. reiknaður við kaup.

Næsta kynslóð af hinum sívinsælu SBD úlnliðsvafningum!

Þessir úlnliðsvafningar eru uppfærð útgáfa af klassísku SBD úlnliðsvafningunum sem kraftaíþróttafólk um allan heim reiðir sig á. Úlnliðsvafningarnir koma eins og áður í tveimur stífleikum - stiff og flex og í þremur stærðum/lengdum - Small (40cm), Medium (60cm) og Large (100cm).
Þú ættir því að finna úlnliðsvafninga sem henta þér og þinni þjálfun hjá okkur. 

Flex - eru hannaðir til þess að styðja vel við úlnliðina en gera þér þó kleift að sveigja úlnliðinn eftir þörfum. Hönnunin á þessum vafningum gerir það að verkum að vafningarnir laga sig að úlnliðnum og halda þægilega við liðinn í sveigðri stöðu. 

Stiff - eru hannaðir til þess að halda mjög þétt við úlnliðinn þannig að hann sveigist ekki en valda þó ekki óþægindum þrátt fyrir stífleika vafninganna. 

SBD úlnliðsvafningarnir eru:
- seldir í pörum 
- leyfðir í keppnum á vegum IPF, þar sem þeir eru í hámarksbreidd (8cm) og eru til upp í hámarks leyfða lengd (100cm)
- með sérhannaðri breiðri teygju sem eru þróaðar og framleiddar sérstaklega til þess að veita úlnliðunum hámarksstuðning
- í hverjum pakka er hægri og vinstri úlnliðsvafningur til þess að tryggja það að þú getir vafið báða úlnliði jafnt 
- framleiddir í Bretlandi

 

Skoða vörusíðu

Customer Reviews

Be the first to write a review
0%
(0)
0%
(0)
0%
(0)
0%
(0)
0%
(0)