Vafningarnir eru geggjaðir!!!! Gera akkúrat það sem ég leitaði eftir. Júlían var ótrúlega vinalegur og hjálpfús þegar ég kom að sækja. Hlakka til að skipta meira við Ellen og Júlían í framtíðinni.
Úlnliðsvafningar MOMENTUM - Flex
Úlnliðsvafningar MOMENTUM - Flex
Venjulegt verð
6.700 ISK
Venjulegt verð
Útsöluverð
6.700 ISK
einingaverð
/
per
SBD Flex úlnliðsvafningarnir eru 8 cm breiðir og fást í þremur lengdum - S (40cm), M (60cm) og L (100cm).
- Úlnliðsvafningarnir koma sér vel í pressum, hvort sem það eru axla- eða bekkpressur en einnig getur verið gott að styðja við úlnliðinn í hnébeygjum, frambeygjum, jerki og öðrum æfingum.
- Úlnliðsvafningarnir eru leyfðir í keppni á vegum IPF og IWF, en henta auðvitað líka þeim sem vilja góðan stuðning við úlnliðina á æfingu.
- Á úlnliðsvafningunum er sterk teygja sem hægt er að vefja um þumalfingur til þess að auðvelda þér að vefja þeim um úlnliðinn.
- ATH - ekki er leyft að hafa teygjuna utan um fingurinn í kraftlyftingakeppni, svo að gott er að venja sig ekki á að hafa teygjuna utan um fingurinn á æfingu.
- Úlnliðsvafningarnir eru seldir sem par - einn fyrir hægri og einn fyrir vinstri hönd.
Það er algengt að við fáum þá spurningu hvaða úlnliðsvafninga fólk eigi að velja sér.
Okkar svar er á þá leið að það fer alfarið eftir því hversu mikinn stuðning þú vilt fá með úlnliðsvafningnum.
Flex vafningar í Medium (60cm) eru okkar allra vinsælustu úlnliðsvafningar, og virðast henta lang flestum óháð íþrótt og æfingum.